16.11.2011 18:32

Búin í sónar

Jæja, ég er búin að fara með Töru í sónar og það eru engir hvolpar á leiðinni í þetta skiptið emoticon
Næsta got verður því væntanlega ekki fyrr en eftir ár. Fjölskyldan er að fara til útlanda næsta sumar þegar Tara gæti átt næst hvolpa þannig að það er út úr myndinni að koma með got þá.

10.11.2011 20:55

Sónar

Næsta miðvikudag munum við fara með Töru í sónarskoðun til að athuga hvort það leynast litlir Grallarar í henni. EF hún er hvolpafull þá ætti hún að vera komin 4 vikur á leið næsta miðvikudag.

22.10.2011 18:27

Pörun lokið

Nú er pörunin búin og bara að bíða og sjá hvað gerist á næstu vikum.
Á morgun fárum við svo leikhússtjörnuna hana Mirru aftur heim. Hún mun vera hjá okkur á virkum dögum en fara með Ástu Dóru hundaþjálfara á föstudögum og koma aftur heim á sunnudögum. Mirra er búin að fá ofboðslega flotta dóma í hlutverki Tótó í Galdrakarlinum í Oz. 
Hér eru umsagnir sem Mirra hefur fengið:




og eitt video í lokin: 

https://www.facebook.com/photo.php?v=2434565304256

30.09.2011 17:13

Tilhugalífið að byrja

Tara er loksins byrjuð að lóða. Nú er bara að krossleggja putta og vona að litlir Grallarar munu fæðast í byrjun/miðjan desember emoticon

18.09.2011 11:36

Mirra leikhússtjarna

Jæja, ég er búin að opna fyrir síðuna aftur. Tók smá pásu á meðan ég var í fæðingarorlofi.

Stærstu fréttirnar eru þær að Mirra er að leika Tótó í Galdrakarlinum í Oz í Borgarleikhúsinu. Hún er búin að vera í þjálfun í 8 vikur hjá Ástu Dóru hundaþjálfara. Frumsýningin var í gær en við fengum að fara á forsýningu seinasta fimmtudag og var leikritið ofboðslega skemmtilegt og Mirra litla stóð sig eins og hetja.

Hér eru nokkrar myndir af dömunni:







Fleiri myndir af Mirru í Galdrakarlinum í Oz eru í albúmi sem ég er búin að búa til hérna til hægri.

Aðrar fréttir eru þær að við stefnum á að setja á Töru núna í lok september/byrjun október. Hún á að byrja að lóða í lok september og vonandi munu nokkrir hvítir hnoðrar kíkja í heiminn í lok nóv/byrjun desember. Ég mun pósta öllu um það um leið og ég veit eitthvað meira.



.

18.10.2010 22:25

Rex sýning 16. - 17. október

4. Westie-ar voru sýndir á síðustu Rex sýningu. Reyndar voru 2 af þeim bara sýndir í ungum sýnendum. Það voru Tara (sem ég á). Hún var sýnd af bróðurdóttur minni Viktoríu og lentu þær í seinasta sæti. Við þurfum eitthvað að æfa þetta betur emoticon
Viktoríu var reyndar alveg sama því hún fékk svo mikið af verðlaunum!
Svo var Sunna sýnd (í eigu Kötu) af eiganda sínum. Þær lentu í 4. sæti.
Svo voru gotbræðurnir Óliver og Markús sýndir í hvolpaflokki 6 - 9 mánaða. Matti litli fékk 1. einkunn, 1. sæti og besti hvolpur tegundar en komst ekki í úrslit. Óliver fékk 1. einkunn, 2. sæti.

Ég tók einhverjar myndir og lét taka fyrir mig en myndavélin mín var eitthvað að stríða okkur því flestar myndirnar voru úr fókus. Þarf að athuga betur stillingarnar á henni. Ég bíð því bara eftir myndunum á heimasíðu Rex af sýningunni. Þær hljóta að vera betri.

Annars óska ég bara Westie-eigendunum til hamingju með árangurinn. Gullfallegir hundar þarna á ferð þó ég segi sjálf frá emoticon

14.10.2010 23:52

Emma í pössun

Seinustu helgi fengum við að passa hana Emmu úr fyrsta gotinu okkar yfir helgi á meðan eigendur hennar gengu í það heilaga emoticon
Emma stóð sig eins og hetja. Vældi svolítið fyrstu nóttina þrátt fyrir að hafa farið í hálftíma göngu áður en hún kom til okkar og svo klukkutíma göngu upp á Rauðavatn. En þá fékk hún bara knús og klapp og var ánægð.
Foreldrar hennar (Tara og Mikki) stóðu sig vel í foreldrahlutverkinu og siðuðu hana til þegar hún var ekki að haga sér eins og hún átti! En það gerðist nú ósköp sjaldan.
Á sunnudeginum fór hún í matarboð og hitti Matta litla (7 mánaða). Þau eru hálfsystkini og það var sko heldur betur fjör hjá þeim. Þau voru í eltingaleik út um allan garðinn (sem er risastór) og inn í hús og aftur út í garð og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar hún kom svo aftur heim þá var hún dauðþreytt og steinsvaf næstum því þangað til hún var sótt daginn eftir.
Það var ofboðslega gaman að fá hana í pössun og setti ég nokkrar myndir af henni í myndaalbúmið.

Einnig setti ég inn myndir af Matta litla sem var að fara í annað sinn í reitingu til Sóleyjar í Dekurdýrum. Tók svona fyrir og eftir myndir handa foreldrum mínum sem eiga sjarmörinn.

Fyrir 


Eftir


Sóley Möller snillingur emoticon

05.10.2010 21:54

Törugot 1. árs

Ég trúi því ekki að það er ár síðan Tara átti sína hvolpa. 
3. október 2009 brunuðum við með hana upp á spítala þar sem hún þurfti að gangast undir keisara til að koma gullfallegum 4 tíkarhvolpum í heiminn. Núna eru þessar yndislegu skvísur orðnar 1. árs gamlar og fæ ég að fylgjast reglulega með þeim, sem mér finnst ofsalega gaman emoticon
Ég óska hvolpakaupendum mínum til hamingju með Emmu, Emmu, Sunnu og Lúlú!

06.06.2010 23:09

Sumarsýning

Mikki töffari fór á sumarsýningu hjá HRFÍ í dag og fékk Excellent, íslenskt meistarastig, besti hundur tegundar og lenti í 4. sæti í tegundahóp.
Algjör mús hann Mikki minn. Pabbi tók einhverjar myndir sem ég reyni að setja inn sem fyrst.
Svo þarf ég bara að stilla honum upp með fínu rósettunum sínum emoticon

Sunna litla úr fyrsta gotinu okkar (Törugoti) er í pössun hjá okkur í viku. Hún er bara rétt orðin 8 mánaða litla krúttið. Það gengur rosalega vel að hafa hana. Hinir hundarnir eru svolítið að siða hana til ef hún fer að haga sér eitthvað kjánalega. Svo þess á milli finnst þeim voðalega gaman að leika við hana. Sunna er búin að fara með okkur upp á Rauðavatn nokkrum sinnum og finnst henni sko ekki leiðinlegt að fá að hlaupa um frjálsri í Westie hóp. Mamma og pabbi hafa komið með Matta litla þannig að við höfum verið með 5 Westie-a. Bara gaman emoticon

09.05.2010 22:11

Rauðavatn 9. maí

Fórum upp á Rauðavatn í dag með foreldrum mínum og þeirra hundum, sem er ekki frásögu færandi nema ég tók myndavélina með mér.
Setti inn fullt af myndum af gerpunum mínum emoticon

02.05.2010 21:52

Rex sýning

Jæja, þá er 5 ára afmælissýning Rex búin.
Mikki keppti í opnum flokki í gær og fékk 1. einkunn, 1. sæti, alþjóðlegt meistarastig (kominn með 2 þá), besti hundur tegundahóps 3 og keppti í dag um titil besta hund sýningar. Hann lenti í öðru sæti þar emoticon  

Sunna (undan Töru og Mikka) keppti í gær í hvolpaflokki 6-9 mánaða fékk 1. einkunn og 2. sæti.

Emma (undan Töru og Mikka) keppti í gær í hvolpaflokki 6-9 mánaða og fékk 1. einkunn, 1. sæti og stig til hvolpameistara. Hún keppti í úrslitum í dag og lenti í 4. sæti yfir besta hvolp sýningar 6-9 mánaða.

Svo keppti gotið (allir 4 hvolparnir undan Töru og Mikka) í gær og fékk gotið 1. einkunn. Það keppti til úrslita í dag og var valið besta got sýningar. Ekkert smá flott!! Ég er alveg í skýjunum yfir helginni.

Tók fullt af myndum, því miður var Lúlú litla farin þegar myndirnar voru teknar þannig að hana vantar í hópmyndatökuna.

Myndir koma inn á morgun, ég nenni ekki að hlaða þeim inn núna. Alveg búin á því. Ætla bara að kúra frekar með Mikka og Mirru emoticon


19.04.2010 21:22

Mikki 2ja ára

Mikki kallinn er tveggja ára í dag emoticon
Hann fór í göngu upp á Rauðavatn,  fékk pulsu í matinn (fær aldrei neitt nema þurrmat) og fór svo á sýningaþjálfun. Kúrir núna uppi í rúmi hjá mér dauðþreyttur anginn!!

Símon fór á nýtt heimili áðan og vonum við að allt muni ganga vel þar. Það gengur allt vel með Óliver og Markús.

Saga litla er ein eftir. Hún var voðalega aumingjaleg þegar Símon fór og hún var ein eftir. Sat pínulítil á gólfinu og horfði á útidyrahurðina og vældi. Þannig að það er mikið búið að vera að vorkenna henni og knúsa og kyssa hana. 

Hún fór út í garð með mömmu sinni og þær mæðgur voru að leika sér saman á fullu. Tók video af því sem ég er að hala inn. Það verður vonandi komið eftir smá stund.

17.04.2010 22:00

Ótitlað

Í dag eru hvolparnir 8 vikna. Þeir fóru í bólsetningu, örmerkingu og ormahreinsun í gær og komu rosalega vel út úr því. Dýralækninum leist mjög vel á þá.
Markús og Óliver fóru á ný heimili í gær og gengur rosalega vel með þá báða.
Símon og Saga eru enn eftir og eru held ég pínulítið að velta því fyrir sér hvar bræður þeirra eru. 
Ég setti nýjar myndir inn í albúmin þeirra og eins nokkrar myndir af þeim í 8 vikna albúm. Það er ansi erfitt að taka myndir af hópnum saman, þau vilja ekki vera kyrr! En ég tók því nokkrar myndir af foreldrum þeirra. Þau eru miklu stilltari viðfangsefni emoticon

11.04.2010 13:01

Ótitlað

Hvolparnir fóru út í garð í morgun og það er alltaf mikið fjör að fá að hlaupa um í grasinu. Mikka tókst að sleppa út úr garðinum á meðan á myndatökunni stóð en hann kom strax aftur. Hann þurfti greinilega að tilkynna nágrannahundunum að HANN væri stoltur faðir hvolpanna sem voru úti í garði emoticon
Ég setti inn nýjar myndir af krúttunum í albúmin þeirra. Svo tók ég myndbönd af þeim í morgun úti í garði og er að setja þau inn, as we speak emoticon
Annars er innan við vika þangað til hvolparnir fara. Saga ætlar reyndar að vera hjá okkur til 1. maí en það mun vera töluvert meiri ró á heimilinu þegar óþekktarangarnir fara á ný heimili! En þeirra verður sárt saknað og hvolpaeigendur eru búnir að lofa mér að fá að fylgjast með þeim og ég veit að hvolparnir eru allir að fara á mjög góð heimili og er því róleg yfr því að þeir séu að fara frá mér. 

10.04.2010 13:01

7 vikna

Hvolparnir eru 7 vikna í dag. Ég setti inn tvö myndbönd. Eitt af foreldrum þeirra og eitt af hvolpunum. 
Ætla svo að taka betri myndir af þeim í dag og setja inn.
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 20
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 79789
Samtals gestir: 15691
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:15:00

Vafraðu um

Westie

Nafn:

Lilja Björk Guðmunsdóttir

Farsími:

895-6969

Staðsetning:

Reykjavík

Tenglar